kristalsnótt, dag og nótt, í gaza-witz

Trausti Baldursson

Inngangur

Nú er svo komið að fullvissa er fyrir því að meirihluti gyðinga í Ísrael hefur lært ýmislegt af böðlum sínum, nasistum. Allt frá lokum seinni heimsstyrjaldar hafa þjóðir heims heyrt af og séð sannleikan um hversu illa var komið fram við gyðinga í Þýskalandi og víða og skipulega reynt að útrýma þeim, börnum, konum og körlum, á kerfisbundinn og ógeðslegan hátt.  Ekki hafa vestræn samfélög falið þennan hluta sögunnar og gyðinga hefur ekki skort fjármagn til að viðhalda þekkingu okkar á þessum mikla harmleik seinni heimsstyrjaldarinnar.

Vegna fjárhgslegs aðstöðumunar gyðinga og annarra hópa (t.d. vegna tengsla gyðinga við kvikmyndagerð í Bandaríkjunum) hefur hins vegar farið mun minna fyrir upplýsingum um aðra þjóðfélags- og menningarhópa sem hlutu sömu örlög og gyðingar í seinni heimsstyrjöldinn þ.e. hópa eins og sígauna, homma, þroskaheftra, kommúnista og yfirleitt allra sem töldust andstæðingar Hitlers/nasista Þýsklands. Þetta er fyrir utan tugi milljóna fólks sem lést í seinni heimsstyrjöldinni.

Þannig að þrátt fyrir viðbjóðslegar og skipulagðar útrýmingaraðferðir gagnvart gyðingum þá var dauðinn sá sami hvert sem litið er. Og ef allir, nú meira en 75 árum síðar, sem eiga ættingja eða trúfélaga sem voru drepnir í seinni heimsstyrjöldinni teldu sig hafa rétt til að hefna sín á einhverjum óskildum aðilum, eins og gyðingar telja sig hafa rétt til gagnvart Palestínumönnum sem höfðu ekkert með nasista Þýskalands að gera, þá væri ástandið í heiminum ekki gæfulegt. Nógu slæmt er það samt.

Ísrael sem ríki

Því miður er ekki hægt að fjalla um Ísrael öðruvísi en að tala um það sem ríki gyðinga einfaldlega vegna þess að Ísrael byggir á þeim trúarlega grunni. Allir gyðingar, hvaðan sem þeir koma, eiga rétt á að setjast að í Ísrael en það á hins vegar ekki við um aðra trúarhópa og þar af leiðandi í raun ekkert annað fólk, þó einhverjir aðrir geti fengið þar búseturétt. Ísraelsríki er því byggt á rasisma, trúarlegu ofstæki og mismunun þegna ríkisins.

Zíonistar héldu því fram, m.a. eftir seinni heimsstyrjöldina til að réttlæta tilurð Ísraels, að gyðingar væru eina ,,trúarþjóðin“ sem ætti ekki land til að búa í. Þetta er auðvitað argasta lýgi því það nægir að benda á Kúrda, Tíbeta, Úígúra svo ekki sé talað um alla þjóðir og þjóðflokka í Norður- og Suður-Ameríku eða frumbyggja Ástralíu.

Palestínumenn, íbúar landsins fyrir 1949 og eftir, eru liðnir svo framarlega sem þeir hagi sér eins og ísraelskir gyðingar vilja.  Framangreint er rasismi byggður á trúarlegu ofstæki en uppruna þessa ofstækis er vel lýst í sögunni um Móses og öllu brölti Jahve við að myrða Egypta/þrælahaldarana til að skapa hina útvöldu þjóð og leiðbeina henni til Ísraels. Svo guð gyðinga Jahve var í raun engu betri en ,,trúarþjóðin” sem guðinn skapaði.

Að hverju er Ísrael orðið?

Ísrael, fyrirheitna landið hinna útvöldu, er orðið að samskonar landi og Þýskaland nasismans og líkist þar að auki aðskilnaðarríki-Apartheit-fyrirkomulagi sem var í Suður-Afríku. Meirihluti gyðinga í Ísrael styður greinilega þjóðernishreinsanir á Palestínumönnum með sama hætti og nasistar Þýskalands vildu útrýma gyðingum. Með ólíkindum er að það heyrist engin gagnrýni á framferði Ísraelsmanna frá samtökum gyðinga annarsstaðar í heiminum. Nei, eina ,,trúarþjóðin“ sem á rétt á réttlæti eru gyðingar. Nóg hafa samtök gyðinga býsnast yfir því óréttlæti sem gyðingar voru beittir í Þýskalandi. En það er ekki það sama manneskja og manneskja, sérstu gyðingur ertu útvalin.

Framangreint er ekki gyðingahatur þetta er lýsing á staðreyndum um ofstækisfulla gyðinga sem líta á sig sem útvalda þjóð guðs. Rétt eins og verið væri að lýsa ofstækisfullu kristnu fólki, það væri efni í nýja grein.

Útrýmingarbúðirnar Gaza, landræningar og USA og Evrópa

Gaza-witz er líklega með stærri útrýmingabúðum nútímans. Allir sem hafa séð myndir frá Gaza-witz vita að það er eitt stórt skipulagt fangelsi/útrýmingarbúðir með háum múrum og gaddavirsgirðingum rétt eins og Auschwitz og ísraelskir gyðingar ráða algjörlega för manna inn og út af svæðinu, þvílík kúgun. Útrýmingarbúðir ætlaðar til að kúga og halda fólki niðri og nú myrða tugþúsundir Palestínumanna með öllum mögulegum aðferðum þar sem hungur og sjúkdómar eru eitt helsta vopn gyðinga. Um 75 börn hafa að meðaltali verið myrt á dag nú síðustu 6 mánuði. Það vantar að vísu gasofnana en meirihluti gyðinga í Ísrael á nóg af öðrum dráps- og eyðileggingaraðferðum í sínum fórum sbr. hér að framan.

Á kostnað hvers er gyðingum hvaðanæva úr heiminum boðið til Ísrael. Auðvitað Palestínuaraba. Að mati meirihluta gyðinga í Ísrael þá er það réttlætanlegt að stela landi, sbr. landnemabyggðir í Ísrael öllu og á Vesturbakkanum, og eigum frá Palestínumönnum. Rétt eins og þjóðverjar nasismans stálum eignum gyðinga. Og hvers vegna er það réttlætanlegt, jú einhver tilbúinn Jahve sagði gyðingum fyrir meira en 2000 árum að svona væri þetta; gyðingar væru Guðs útvalda þjóð og Ísrael þeirra ríki. Það er ekki öll vitleysan eins.

,,Trúarþjóðin” sem nasistar fóru svo illa með í seinni hemstyrjöldinni telur sig eiga allan rétt á að láta hefndina bitna á Palestínumönnum og það í boði margra vestrænna ríkja með Bandaríkin í fararbroddi og aumingjalönd eins og t.d. Ísland og Danmörku sem sleikja sannleikann um hvað sé rétt og rangt þaðan.

Meira að segja Þjóðverjar selja Ísraelsmönnum vopn. Hvað var Jahve eiginlega að hugsa þegar hann valdi þetta fólk? Og hvað er Evrópa eiginlega að hugsa að bjóða þessu ríki, þar sem meirihlutinn af fólkinu eru ofstækisfullir morðingjar, þátttöku í evrópskum menningarviðburðum. Má hér nefna íþróttaviðburði og Eurovision. Eigum við ekki alveg eins að bjóða Hamas þátttöku í Eurovision?

Með framferði sínu er Ísland og Evrópa í raun búin að segja að það sé bara allt í lagi myrða fólk í stórum stíl. Nei afsakið dómgreind evrópskra ríka er á svo háu stigi að hún getur auðveldlega greint á milli t.d. Rússa og Ísraela. Af því að það var farið illa með gyðinga í seinni heimstyrjöldinni þá er þeim allt leyfilegt í dag. Það eru skilaboðin. Tökum hattinn ofan fyrir Gísla Marteini, hans dómgreind er greinilega meiri en íslenskra ráðamanna og kvenna.

Gyðingahatur og margar hliðar þess

Nei því miður byggja hugmyndir meirihluta gyðinga og Zíonista í Ísrael á yfirgengilegri eigingirni og trúarofstæki. Og ef einhver gagrýnir gyðinga þá er viðkomandi gyðingahatari. Undirritaður hatar hvorki gyðinga né kristna né múslima né þá sem eru búddatrúar né nokkurn annan hóp fólks sem heild. En undirritaður fyrirlítur meirihluta gyðinga í Ísrael, rétt eins og undirritaður fyrirlítur ISIS, talibana eða kristna trúarofstækismenn þ.e. alla þessa hópa eða hluta þeirra fyrir þá öfgafullu og eyðandi hugmyndafræði og gjörðir sem þeir standa fyrir. Já segjum hlutina eins og þeir eru, meirihluti gyðinga í Ísrael eru algjörir drullusokkar, rasistar, trúarofstækismenn og morðingjar. Jú, hvernig getur maður sagt þetta, jú meirihluti gyðinga í Ísrael kaus núverandi stjórn sem situr við völd og meirihlutinn kemur stjórninni ekki frá.

Hverjir eru saklausir og hverjir eru sekir?

Það þýðir ekkert að væla um það að það séu mótmæli einhverra þúsunda í Ísrael gegn stjórn Ísraels. Hluti þeirra mótmæla er vegna gíslanna en ekki morða á Palestínumönnum. Það er ekki hægt að álykta neitt annað út frá því sem er að gerast í Ísrael en að meirihluti gyðinga þar hafi engan skilning á því hvað sé rétt og rangt nema í þeim skilningi að allt er rétt sem meirihluti gyðinga í Ísrael gerir og allt rangt sem aðrir gera. Og gjörðir stjórnar Ísraels megi réttlæta með tilvísun í val Jahve á gyðingum sem hinnar útvöldu þjóðar eða ,,trúarþjóðar“ og svo með vísun í atburði síðari heimsstyrjaldar.

Að Hamas samtökin drepi 1200 Ísraelsmenn er fullkomin, að mati meirihluta gyðinga í Ísrael, afsökun til að drepa 33.000 þúsund íbúa Gaza-witz á 6 mánuðum, hvort sem þeir eru sekir eða saklausir, og eyðilegga byggðir 2,4 milljón manna.

Þeir sem hafa hlustað á ísraleska landnema í fjölmiðlum tala um rétt sinn til að hirða land Palestínumanna vita á hvaða ofstæki þeir byggja skoðun sína. Hamas samtökin verða til vegna meira en 70 ára kúgunar meirihluta ísraelskra gyðinga á Palestínumönnum. Það réttlætir ekki morð á saklausum börnum gyðinga. En ofsa þeirra og baráttu er hægt að skilja og má líkja honum við baráttu gyðinga, t.d. í Varsjá, í seinni heimsstyrjöldinni, en það réttlætir ekki morð á saklausum einstaklingum. En þá vaknar sú leiðinlega spurning, eru fullorðnir gyðingar, þ.m.t. landnemarnir, sem stela landi Palestínumanna og myrða þá umsvifalaust ef svo ber undir, yfirleitt saklaust fólk, hver vill svara?

 Trausti Baldursson.

Greinin hér að ofan byggir á almennri þekkingu undirritaðs á málefninu og lýsir skoðunum undirritaðs á því. Þeir sem vilja kynna sér fleira um Mið Austurlönd þ.m.t. Ísrael er m.a. bent á bókina Mið Austurlönd, fortíð, nútíð og framtíð eftir Magnús Þorkel Bernharðsson. 

Einnig má lesa mjög athyglisverða grein um kúgun Ísraelsmanna á Palestínumönnum í greininni, Menntamorð sem birtist á visir.is þann 16. maí sl. sjá hér: https://www.visir.is/g/20242571428d/menntamord og heimildir má finna hér: https://heimildir.blogspot.com/2024/05/heimildir-fyrir-greinina-menntamor.html?m=1